Psalms 140

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. 2Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum, 3þeim er hyggja á illt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum. 4Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðrueitur er undir vörum þeirra. [Sela] 5Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig. 6Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. [Sela] 7Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni. 8Drottinn Guð, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum. 9Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi heppnast. [Sela] 10Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá. 11Lát rigna á þá eldsglóðum, hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið. 12Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum. 13Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra. [ (Psalms 140:14) Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu. ]
Copyright information for Icelandic